Heilun og táknmál líkamans.
Neiðkvæð upplifun við heilun.

Tinandi höfuð: Beina athygli að fótum –jarðtengja og nota jafnvel kristalla við jarðtengingu.

Þaninn kviður: Of mikil orka í sólarplexus. Jarðtengja og nota kristalla í sambndi v/vinnu v/innra barn og nota tákn/kristalla inn á tilfinningar.

Vera “speisaður”: Keyra kundalini gegnum micro-cosmic svið og nota jarðtengjandi kristalla.

Aftengist raunveruleikanum: Illa jarðtengdur og nauðsynlegt að still sig inn og gott að nota til þessa hugleiðslu m/jarðtengjandi kristalla og komast í jafnvægi.

Hvernig á að stilla sig inn:
1. Hafa athygli í hvatastöð
2. Hugleiða m/kristalla sem við á.
3. dreka vatn lítið í einu og hægt.
4. hafa Rósaquartz í báðum lófum.
5. Fyrir heilarann: Setja hendur í skál með heitu eða söltu vatni þar til jafnvægi kemst á.
6. hreinsa áruna.
7. fara í göngutúr út í náttúrunni og finna tengingu við náttúruna.


Jákvæð upplifun við heilun.

Svitna: Eðlilegt. Tákn um að líkami er að hreinsa sig.
Dofna: Eðlilegt. Chi orkan flæðir.
Aukin þvaglát: Góðs viti. Nýrun vinna betur og hreinsa líkama – getur komið dekkra þvag og lyktsterkara.
Breyting á húð: Gott, sérstaklega ef þú hefur verið að dylja ástandið.
Húð dökknar: Gott, aukið flæði.
Svefntruflanir: Gott, líkaminn er að endurballansera sig og gömul orkumynstur að losna.
Reiði: Eðlilegt. Orkan flæðir. Reiði er goð leið til að losa staðnaðar tilfinningar svo heilun geti átt sér stað. Gæta þess að reiðin sé losuð á öruggum og jákvæðum stað.
Þreyta: Merki um að Chi orkan flæðir og á meðan þarf líkaminn hvíld
Ropa: Gott. Líkami losar um eitranir og annað drasl.
Uppþembdur kviður: Gott. Líkami að losa um eitranir og fl.
Gömul sár/meiðsl taka sig upp: Gott. Mjög djúp heilun.
Kitl: Eðlilegt. Merki um aukið Chi flæði.
Skjálfti: Eðlilegt. Líkami losar um staðnaða orku.

Ráð: Drekka mikið vatn, bæði fyrir og eftir heilun og svo persónulegar ráðgjafir fyrir hvern og einn.


Táknmál líkamans:

Hægri hlið líkama: Karlhlið, dynamic, ganga út frá, ráðríki, sjálfsvörn, takmarkanir, fjármál, þjóðfélagsstaða, faðir/stjórnandi.

Vinstri hlið líkama: Kvenhlið, þyggjandi, viðkvæmni, umönnun, verjandi, sköpun, andleg/líkamleg málefni.

Framhlið: kvenhlið

Bakhluti: karlhlið

Heili: Ójafnvægi á karl og kvenhlið.

Höfuð: Of mikil orka í höfði, hugsar og mikið, kvíði, ruglingur, höndlar ekki raunveruleikann, vill ekki breytingar, tekur ekki ábygð, ótti við uppljómun/raunveruleika.

Höfuðverkir: Of mikið að kryfja, reiði, ruglingur, ótúlkaðar tilfinningar.

Augu: Vill ekki sjá eða sjást, tengist heilaköngli og 3ja auga. Augu eru gluggi sálarinnar. Gul slikja á augum þýðir vandamál í lifur, grátt þýðir aukið slím í meltingu líkamans, rautt þýðir sýking eða pirring og bældar tilfinningar.

Eyru: Hár blóðþrýstingur. Vill ekki heyra eða heyrast, lítið sjálfsálit, sjálfstraust, getur tengst áföllum fyrralífs tengdum. Þá tengist þá því að hafa sagt sinn innsta sannleik og er þess vegna “refsað” fyrir það.

Háls: Tjáir sig ekki, fastar tilfinningar, talar án þess að hlusta eða taka eftir öðrum. Vandamál varðandi “sjálfið”, grobb, kreddur, nöldur. Geymir djúpa sorg í hjarta, ótöluð orð.

Mæna: Styður alla verund, tilfinning fyrir því að fá ekki stuðning fjölskyldu og vina. Mæna virkar líka sem akkeri og hlið til hærri tíðni og núverandi tíðni, því geta vandamál tengd mænu tengst þeirri ósk að vera ekki hér eða að flýja líkamann.

Hálsstöð: Stirðleiki, of miklar byrðar, of mikil ábyrgð. Skjaldkirtill, vandamál tengd tilfinningalíkama og ofvirkur skjaldkirtill táknar þörf til að læra að gea af sér og þjóna á meðan vanvirkur skjaldkirtill tengist þörfinni til að læra að þiggja.

Axlir: Ábyrgð á fjölskyldu, öðrum og mér - er að kikkna undan álaginu. Hangandi axlir- ofurábyrgð. Stífar axlir- viðkvæmni og ótti. Ef vinstri öxl er hærri er það inn á kvenorkuna ef hægri öxl er hærri er það inn á karlorkuna.
Efra bak: Hægri hlið – þörf til að tengjast og að vera virðingu fyrir tenginum annarra. Geymd reiði. Vinstri hlið- Geymd sorg, þjáning, getur líka tengst sársaukafullum minningum úr æsku tengda foreldrum.

Brjóst: Sorg, ótti, hjartasár, missir, höfnun, yfirgefin, óregla á orku ástar, ófær um að gefa og/eða þiggja ást. Astmi getur tengst reiði sem hefur verið bæld. Orpið brjóst – skortur á sjálfsást.

Neðar bak: Kynferðisleg misnotkun, geymd reiði, geymd sektarkennd.

Nýru: Áfall – sjokk – vandamál tengd ónæmiskerfi, streita, ofnæmi, tilfinningalegt ójafnvægi., lítil orka.

Rófubein: Tengt ótta, frama, hreyfingu, vera lifandi, vill ekki komast af, rófubein geymir “kundalini” orkuna.

Kviður: Geymir óhreinsaðar upplýsingar tengdar reiði, ótta, skömm og sektarkennd.

Lifur: Hefðbundinn kínversk læknisfræði kennir okkur að lifur sé “geymsla” fyrir reiði og ótta.

Gallblaðra: Reiði verður hægt og rólega að biturð. “AFHVERJU ÉG?” eða “Píslarvottur”.

Magi: Efri hluti- afneitun eða geta til að tileinka okkur skoðanir annarra, troðum okkar skoðunum upp á aðra. Neðri hluti- Ótjáð reiði sem er að éta mann upp.

Melting: Tökum meira á okkur en við ráðum við.

Milta – Sólarplexus: Söfnunarstöð fyrir fortíðarvanda og áföll. Bældar tilfinningar og reiði.

Þarmar: Ristilbólga/niðurgangur er tengdur losun gamalla tilfinninga, hugmynda eða hugsana. Harðlífi – heldur í reiði , ótta og sektarkennd.

Eggjastokkar: Reiði gagnvart mönnum, og/eða vegna nauðgunar, fóstureyðingar, fósturláti, misnotkun og öllu sem tengist kynlífi og er óleyst, auk ótta/reiði/ gagnvart kynlífi. Sjálfsásökun einnig tengd kynlífi og kynhegðun.

Blaðra: Ótti tengdur kynferði, innilokuð reiði, sektarkennd, ófær um að láta í ljós gleði og hamingju.

Blöðruhálskirtill: Óleyst vandamál gagnvart konum, kynferðislegt ofbeldi, áfall tengt fæðingu, hjálparleysi, yfirgefin, valdleysi.

Fótleggir: Tengjast framför okkar í lífinu, ótti við breytingar, ótti við framtíðina. Fætur tengja okkur við móðurina og jörðina. Mjög grannir eða veikbyggðir fætur: viðkvæmni, er óvarin, ójarðtengdur. Of þungir fætur: Ótti v/reiði, of jarðtengd, of veraldleg, græðgi. Mikil læri: Gefur til kynna áfall og sjokk í barnæsku, fórnarlamb sem barn, alveg valdalaus.

Mjaðmir: Þorir ekki að halda áfram, ójafnvægi milli huga (hugsana) og hjarta (tilf). Frosin sköpunarkraftur og listrænt flæði.

Hné: Hnén standa fyrir tæknihliðina á að geta gengið. Þau tengjast þrjósku, ósveigjanleika, óákveðni, hiki og vandræðagengi. Leysa ekki vandamál sem upp koma.

Ökklar: Neitar að sjá sannleikann, óákveðni, efi, vantrú, óróleiki, setur skilyrði.

Fætur: Get þetta ekki, stendur ekki með sjálfum sér. Hefur að gera með öryggi og að komast af. Vandamál á vinstra fæti tengist stöðnun í sköpun á meðan vandamál í hægra fæti tengjast “veit allt best” tilfinningunni.

Tær: Þorir ekki að stíga fram, vera þú sjálfur, treysta framtíðinni, erfiðleikar með að treysta á alheiminn, lélegt sjálfsmat.

Hendur: Of mikið að sjá um, tengist líka að gefa (hægri hendi) og þiggja (vinstri hendi).

Olnbogar: Ósveigjarlegur, frosin framkoma, fastur í fórnarlambsmeðvitund. Ófær um að tjá tilfinningar og þrár.

Húð: Sýnir tilfinningar. Lokar á allar tilfinningar , ófær um að takast á við þær. Sjálfsniðurrif, springur auðveldleg og er veikgeðja.

Bein: Geyma upplýsingar, minni forfeðra, fyrrilífa og karmisk munstur.




ENGLAR
Litir og kristallar sem tengjast þeim auk verksvið þeirra.

ARIEL:
Ljósbleikur – rósaquarts.
Guðdómlegir töfrar – andlegt umhverfi –manifestation.

AZAREL:
Vanillugulur – rjómagulur – calcite
Huggar deyjandi &
Heilun með litum.
Sjáið fyrir ykkur orkustraum með þeim lit sem nota á, flælða niður í höfðustöð frá hinum Guðlega og eins frá Jörðinni upp fæturnar og láta orkurnar mætast og blandast saman í hjartastöðinni.
Heilun og táknmál líkamans.
Neiðkvæð upplifun við heilun.

Tinandi höfuð: Beina athygli að fótum –jarðtengja og nota jafnvel kristalla við jarðtengingu.

Þaninn kviður: Of mikil orka í sólarplexus. Jarðtengja og nota kristalla í sambndi v/vinnu v/
Hugveislan Logasalir 8, Kópavogi. S: 690 6004 veffang: syggasys@simnet.is