Heilun - Reikiheilun
Heilun.
Heilun er aðferð lækninga þar sem orku er beitt, ýmist með handayfirlögn eða fjarheilun. Læknandi áhrif heilunar verða þegar efri líkamarnir, t.d. orku-, tilfinninga-, og geðlíkami fá leiðréttingu á orkufæði sínu. En það gerist þegar losað er um orkustíflur sem orsakast m.a. af bældum tilfinningum. Þetta er hægt að gera með heilun og í kjölfarið leiðréttist ástand efnis-líkamans. Það sama getur gerst þegar við breytum afstöðu okkar eða hugarfari t.d. með því að fyrirgefa. Þegar við fáum heilun gefum við líkama okkar aðgang að aukinni orku þannig að frumur líkamans fá betra tækifæri til að starfa rétt.
Reiki er heilun.
Reiki er ein af mörgum heilunaraðferðum. Reiki er hvorki betra né verra en aðrar heilunaraðferðir en það hentar sumum betur en öðrum. Það sama gildir um aðrar heilunaraðferðir.
Meðfæddir eiginleikar.
Nýfædd börn eru fullkomnir heilarar, þ.e.a.s., rótarstöðin og hvirfilstöðin eru vel tengdar. Heilunarorkan flæðir eins og nauðsynlegt er til allra sem koma nálægt barninu. Þannig jafnar barnið orku allra einstaklinga sem umgangast það. Það sama gerist líka við umgengni við heimilisdýr, t.d. hunda eða ketti. Með nálægð sinni jafna þau orku okkar.
Við 3. til 5. ára aldur hætta börn að sjá árur og heyra og sjá inn á önnur svið. Á sama tíma lokast fyrir heilunareiginleikana. En leiðin sem heilunarorkan þarf að fara um er til staðar. Hún liggur frá hvirfli gegnum þriðja augað, hálsstöð og hjartastöð og út í hendur. Til þess að opna fyrir orkuflæðið á nýjan leik er hægt að fara í gegnum þjálfun, heilunarnámskeið eða heilunar-skóla. Stundum gerist þetta af sjálfu sér, einkum og sér í lagi hjá fólki sem í starfi sínu er í líkamlegri snertingu við aðra og hefur kærleiksríkt hugarfar. Slíkir einstaklingar nota oft heilun í daglegum störfum sínum án þess að hafa hugmynd um það. Þetta má finna og sjá hjá nuddurum, snyrtisérfræðingum, hárgreiðslufólki, prestum, hjúkrunarfólki og læknum svo eitthvað sé nefnt. Á reikinámskeiði eru þessir heilunar-eiginleikar endurvaktir og tengingunni komið á svo að viðkomandi getur miðlað heilunarorku í gegnum sig, til sín eða annarra. Þessir eiginleikar eru endurvaktir fyrir lífstíð. Ef heilunarorka er notuð á meðvitaðan hátt, þá þróast þessi eiginleiki þannig að viðkomandi getur miðlað í gegnum sig stöðugt hærri tíðni. Þetta hefur þau áhrif á einstaklinginn að vitundarþroski hans eykst og um leið þróast og eykst næmni viðkomandi.
Þegar þessir eiginleikar hafa verið endurvaktir er tengingin stöðug og heilunarorkan getur flætt gegnum heilarann hvar og hvenær sem er. Þetta veldur breytingu á orkuflutningi til annarra sem kemur fram í því að einstaklingurinn tapar ekki eins og áður eigin orku því heilunarorkan fer af stað um leið og við nálgumst þá sem þurfa á aukinni orku að halda Þetta gerir einstaklinginn m.a. mun sterkari og hann heldur orkulegu og tilfinningalegu jafnvægi mun betur. Þrátt fyrir reikitenginguna getum við tapað orkunni okkar í gegnum neikvætt hugarfar. Sérstaklega gerist þetta ef við tökum þátt í neikvæðni eða látum neikvæðni annar hafa áhrif á okkur. Hugarfarið er og verður alltaf það afl sem hefur mest áhrif álíðan okkar.
Þrjá vinnureglur í Reiki.
1. Þiggjandinn þarf sjálfur að biðja um Reiki.
2. Þiggjanda þarf að vera ljóst að nauðsynlegt er að koma þrjá daga í röð í fyrstu meðferð. (Gildir aðeins ef farið er yfir orkustöðvar).
3. Gættu þess að orkuskipti fari fram.
Með fyrstu reglu er átt við að ekki má í neinu tilfelli þröngva reikimeðferð upp á aðra. Þetta þýðir ekki að þú megir ekki bjóða hjálp þína og láta fólk vita að þú hafir þetta fram að bjóða.
Varðandi aðra reglu, eru þessi þrjú skipti í raun ekki nóg. Þau eru aðeins byrjunin. Þau gefa líkamanum jafnvægi en eiginleg heilun byrjar yfirleitt ekki fyrr en að þeim loknum. Líkaminn raðar viðfangsefnum í forgangsröð. Hann leitast alltaf fyrst og fremst við að koma sér í jafnvægi. Eftir að því er náð og ef heilun er haldið áfram þá fer hann að nota orkuna í það að laga skemmda vefi, t.d. kalkaða liði, gigt, tognun á vöðvum, laga skemmdar æðar og jafnvel æðakölkun, æðahnúta o.fl. . Líkaminn fer að nýta sér orkuna til að laga hvers kyns sjúkdóma þegar að þeim kemur í forgangsröð en ekki eftir persónulegum óskum okkar.
Þegar við förum yfir orkustöðvar í fyrsta skipti þá ýfum við upp ástand þeirra og breytum jafnvægi þeirra. Þetta getur orsakað óþægindi en ástandið gengur til baka á 2 til 3 sólarhringum. Hins vegar, ef við gefum strax aftur meðferð innan sólarhrings (má vera innan 10 klst), nær virknin ekki að ganga til baka og uppbygging heldur áfram. Þá næst jafnvægi á þremur dögum, eða með þremur skitpum. Annars gæti tekið 10 – 15 meðferðir að ná jafnvægi.
Þegar við gefum einhverjum í fjölskyldu okkar eða vinahópi reikimeðferð þurfum við ekki að passa upp á orkuskipti vegna þess að í slíkum hópi eru stöðug orkuskitpi í gangi, þ.e. við erum alltaf að gefa af okkur á einhvern hátt. Hins vegar þegar við gefum einhverjum reikimeðferð sem ekki telst til þessa hóps þurfum við að passa upp á orkuskipti fari fram, sem felst í því að við gefum tíma okkar til að gefa viðkomandi reikimeðferð og viðkomandi gerir eitthvað fyrir okkur á móti. Þetta getur verið í formi greiða, gjafar eða peninga. Það að fá að æfa sig á einhverjum geta líka verið orkuskipti. Ekki gleyma að þakklæti getur líka verið orkuskipti. Og alltaf að muna að: “Sælla er að gefa en þiggja”.
Hvernig virkar Reiki?
Þegar þú notar Reiki á meðvitaðan hátt stjórnar þú því með huga þínum hvert þú ætlar að beina orkunni. Við notum annað hvort handayfirlögn eða fjarheilun sem leið fyrir orkuna. Þiggjandinn stjórnar sáralitlu eða engu um það hvert orkan fer í líkama hans/hennar, það gerir heilarinn ekki heldur, nema að því marki að leggja hendur á svæði annað hvort með, orkustöðvameðferð í huga (hendur á orkustöðvar) eða til að gefa læknandi meðferð, eins og að leggja hendur á veikan stað. Raunverulegur stjórnandi er æðra sjálf viðtakanda. Þannig getur þú lagt hendur á herðar manneskju en ef hún er með veikt hné gæti orkan farið beint þangað. Það er því sagt að við heilum aðra eða læknum. Þegar heilun eða lækning á sér stað er það vegna þess að þiggjandi eða sjálfið hans/hennar velur heilun eða lækningu. Hins vegar þegar við heilum okkur sjálf, erum við að lækna okkur sjálf.
Reiki í daglegu lífi.
Sá sem hefur farið á reikinámskeið og er kominn með tengingu sem þar verður, getur á auðveldan og áhrifaríkan hátt komið sér í tilfinningalegt, orkulegt og líkamlegt jafnvægi. Því fylgir að viðkomandi finnur fyrir þessari svokölluðu innri ró sem við leitum öll að. Einnig verður viðkomandi sterkari í ákvarðana- töku og einbeitingu, sjálfsöryggið eykst og umburðarlyndi líka. En til þess að svo megi verða þarf að gefa sér, til að byrja með, daglega meðferð (3 – 5 mín/dag) þar sem farið er yfir orkustöðvarnar sjö. Meðferðin tekur 30 – 40 mín og tíminn styttist eftir því sem frá líður. Smám saman lærir þú að finna hvernig jafnvægistilfinningin er, og hvenær þú ert í jafnvægi og hvenær þú þarft meðferð. Orkustöðvameðferðin getur verið í gangi allan daginn. Þannig geturðu unnið með stöðvarnar á höfðinu sitjandi við borð að morgni, hálsstöð og sólarplexus yfir daginn, eða þegar þú situr við sjónvarp á kvöldin, jafnvel á meðan þú situr og spjallar við aðra og síðan geturðu tekið neðstu stöðvarnar tvær, tilfinningastöð og rótarstöð þegar þú kemur upp í rúm að kvöldi. Þetta er upplagt fyrir þá sem hafa talið sér trú um að þeir hafi ekki tíma fyrir sig. Þegar þessari aðferð er beitt verður að gæta þess vel að gleyma ekki einhverri orkustöð.
Gott er að sýna sjálfum sér þann kærleika að eiga í einrúmi kyrrláta stund, hlusta á rólega tónlist, kveikja á kerti og fara svo yfir orkustöðvarnar sjö. Sumir þurfa líka að vinna daglega með einhverja af aukastöðvunum. Ef þú átt erfitt með að fá frið á heimilinu gæti þetta verið upplögð kennslustund fyrir aðra fjölskyldumeðlimi í því að taka tillit til þinna þarfa og annarra.
Í hvert sinn sem þú leggur hendurnar á nýtt svæði hefst nýtt ferli. Orkuflæði byrjar og eykst smám saman þar til það nær hámarki. Hámarkið getur staðið yfir í nokkrar mínútur en rénar síðan. Meðan orkuflæði er í hámarki geturðu fundið fyrir hita, dofa, slætti, að hendur þrútni út, einnig geturðu fundið fyrir kulda. Þú verður að læra að finna hvernig þú skynjar orkuflæði. Þegar orkuflæðið fer að minnka finnur þú náladofa í fingrum, þá dvelurðu örlítið lengur á staðnum og færir þig svo á næsta stað. Smátt og smátt lærir þú, hvaða líkamssvæði það eru sem þarfnast heilunar. Næmi og virkni er ekki það sama. Næmi getur verið mikið en virkni lítil, og öfugt. Þannig getur þú upplifað í sjálfs- meðferð að þú finnur ekki fyrir neinu. En láttu það ekki hindra þig því þú munt finna að meðferðin gerir þér gott. Eftir því sem næmi þitt eykst, lærir þú að skynja flæðið. Það er mikilvægt að hlusta eftir löngun sinni og þörf að læra að fara eftir þeim.
Jákvætt hugarfar.
Heilun er af hinu góða og getur bætt ástand okkar mikið. Reynslan kennir okkur þó, að neikvætt hugarfar getur á svipðstundu rifið niður og gert að engu vel heppnaða reikimeð- ferð. Þiggjandi, sama hve geðþekkur hann kann að vera, sem hefur misst trúna á lífið og tilveruna og býst alltaf við hinu versta, er þræll óttans. Þetta ástand þekkjum við öll. Því er hægt að breyta ef þú vilt. Fyrst þarft þú að koma auga á “ranga” afstöðu þína. Það er afstaðan þín og hugarfar sem stjórnar því hvernig þér líður, en ekki umhverfi þitt eða kring- umstæður. Þú getur e.t.v. ekki breytt aðstæðum þínum eða annarra en þú getur alltaf breytt afstöðu þinni, ef þú vilt !!!
Einhver mesta heilun sem verður, er þegar fólk breytir afstöðu sinni og fer að líta hlutina öðrum augum, þ.e. með jákvæðu hugarfari í stað neikvæðs hugarfars, með skilningi og umburðarlyndi í stað dómhörku og reiði. Oft er þetta nóg til að umbylta daglegu lífi og líðan.
Reiki og dýr.
Dýr taka mjög vel við reikiorkunni. Sérstaklega á meðgöngu og ef þau eru veik. Ef þú ætlar að vinna með dýr og dýrið víkur sér undan taktu þá tillit til þess, eða athugaðu hvort kannski vanti að tala við anda dýrsins og biðja um leyfi. Við þurfum að sýna dýrunum virðingu rétt eins og mannfólkinu. Dýrum gefur þú orkustöðvameðferð eða staðbundna meðferð eftir aðstæðum. En munum að dýrin gefa okkur orku og leiðrétta orku okkar og þau vilja fá að halda því hlutverki nema þau séu veik.
Reiki og blóm.
Blómin taka líka vel við reikiorku. Ef þau eru slöpp eða illa á sig komin þá vökvar þú blómið og tekur svo utan um blómapottinn (rótina). Jafnvel þó blóm sé komið með trénaðan stöngul og sé algjörlega blaðlaust og hafi ekki verið vökvað í einhverja mánuði eða vikur getur það komið til og farið að vaxa og dafna eftir reikimeðferð.
Reiki og hlutir.
Allt er orka bundin í mismunandi form. Þar af leiðandi er hægt að gefa orku á t.d. vélar, ýmis tæki, bíla, hlaða rafhlöður, losa stíflur úr vöskum, opna kviklæstar skrár o.s.frv. Alltaf þarf að hafa báðar hendur á hlutnum. Það er t.d. ekki nóg að hafa eina rafhlöðu í hvorri hendi, þú verður að nota báðar hendur á eina rafhlöðu. Prófaðu þig áfram og láttu reynslu þína kenna þér og koma þér á óvart. Þetta flokkast ekki undir guðlast eins og sumir halda, heldur er þetta þáttur í því að laga umhverfi okkar og bæta.
Veikindi, dauðinn og Reiki.
Heilun er ekki alltaf til að lækna. Stundum er heilun til þess að styrkja manneskju í að takast á við sjúkdóm sinn. Jafnvel þó að skjólstæðingur hafi látist hafa komið skilaboð að handan þess eðlis að heilunin hafi hjálpað viðkomandi í viðskilnaðinum, svo við skulum ekki ákveða að það taki því ekki að gefa einhverjum heilun vegna þess að viðkomandi sé of langt leiddur. Egóið okkar vill gjarnan að allir sem við gefum heilun læknist. En við þurfum að læra að vera hlutlaus í því að hjálpa öðrum og hætta að gera kröfur um árangur.
Guðrún Óladóttir : “Ég tel að þegar við deyjum förum við “heim”. Sem kristin manneskja trúi ég að við eigum eilíft líf. Og ég veit að þessi 70 – 80 ár sem við eyðum hér á jörðinni er ekki eilífðin. Þetta þýðir að “heima” er hinumegin, eða fyrir handan þetta líf. Ég tel hins vegar að vera okkar hér á jörðinni sé verkefni fyrir sálina sem reynist oft á tíðum mjög þungbær og erfiður tími vegna þeirra takmarkana sem við upplifum meðan við erum hér. Þegar manneskja er tilbúin að fara “heim” (deyja) ættum viðað fagna heimferð hennar, fagna því að hún hafi lokið hlutverki sínu jafnframt því sem við syrgjum það að fá ekki lengur að njóta samvista við hana á þessu tilverusviði”.
Viðkvæmir einstaklingar.
Þegar líkaminn tekur á móti heilunarorku nýtir hann hana gjarnan til að ýta við ýmsu. Ef um mikil veikindi er að ræða geta verkir aukist og einkenni versnað fyrst um sinn. En með áframhaldandi meðferð gengur þetta yfir og líðanin verður mun betri en áður. Þetta er svokölluð hreinsun (healing crisis). Reikiorkan setur ýmislegt af stað í líkamanum, hreyfi við ýmsu, rétt eins og nudd. Af þessu leiðir að fólk sem er viðkvæmt, t.d. ungabörn og gamalt fólk ætti að fá styttri meðferðir í einu, en jafnframt fleiri. Rétt er að taka fram að reiki getur ekki skaðað. EF miklir verkir koma fram á stað sem verið er að heila, er rétt að halda áfram, svo lengi sem þiggjandinn þolir við því eftir smá tíma minnkar verkurinn aftur og hættir jafnvel alveg. Ef við hins vegar hætttum í miðju kafi, þegar verkurinn stendur sem hæst, er hætta á að hann vari mun lengur.
Ef þú ætlar að vinna með einstakling sem hefur of háan blóðþrýsting og er ekki á blóðþrýstingslyfjum getur blóðþrýstingur hækkað það ört að einstaklingurinn fari í lost. Þetta gerist ekki ef hann er á lyfjum. Ekki er ástæða til að hætta við meðferð vegna þessa heldur gefa styttra en oftar á hvert svæði ( 2 – 3 mín). Einu skiptin þar sem ekki er ráðlegt að nota heilun er þegar einstaklingur er í svæfingu eða undir deyfingu. Það kemur til að því að líkaminn notar orkuna til að losa sig við deyfingar og svæfingarefni, en það kæmi ekki vel út í aðgerð. Hinsvegar er hægt að nota reiki bæði fyrir og eftir aðgerðir.
Andleg neyslusýki.
Rétt er að benda á að efnishyggjan hefur fætt af sér nokkuð sem kallast neyslusýki. Hún kemur fram á hinum ýmsu sviðum, jafnvel á andlegum námskeiðum. Einkenni hennar eru þau að manneskja fer á hvert námskeiðið á fætur öðru og þó hún sé ánægð með námskeiðið þá stoppar hún ekki við og nýtir sér það sem hún lærði heldur finnur sér strax nýtt námskeið til að fara á. Þannig hefst endalaus leit að einhverju nýju og fyrri námskeiði nýtast ekki að neinu gagni. Þetta er afleiðing þess að við leitum svara utan sjálfra okkar. Þegar við förum að leita að svörunum innra með okkur hverfur þessi þörf.
Reiki og hugleiðsla.
Alfa ástand (Alfa State of Mind) er það ástand sem okkur er eðlilegt að vera í. Alfa bylgjur eru á tínisviði 7 til 14 rið/sek. En í dag er það svo, alla vega í vestrænum samfélögum, er hraðinn í daglegu lífi svo mikill að við komumst ekki í alfa ástand nema í svefni eða hugleiðslu en erum þess í stað oftast í beta ástandi sem eru yfir 14 rið/sek. Beta er ástand sem við ættum aðeins að nota þegar hætta steðjar að eða þegar við þurfum að vera sérstaklega á verði. Þegar maður er í alfa ástandi, sem er það ástand þegar heilinn gefur frá sér alfa bylgjur, þá breytist einbeiting okkar, tilfinning fyrir tíma detur út og við höfum aðgang að vissum stöðvum í heilanum sem við annars lokum á. Þetta eykur innsæi okkar. Þess vegna er m.a. gott að hugleiða. Við erum oftast í svokölluðu streituástandi sem er síður en svo gott fyrir okkur, við eyðum mikilli orku í streituna. Hún orsakar þreytu og minnkar einbeitingu og yfirsýn. Við skulum taka dæmi: Hugsaður þér að við keyrum niður Laugaveginn á 100 km hraða. Hvað sérðu? Ekki neitt! Keyrðu niður Laugaveginn á 50 km hraða. Hvað sérðu þá? Eitthvað pínulítið! Prófaðu nú að ganga niður Laugaveginn. Hvað sérðu þá? Já nú tekurðu nefnilega fyrst eftir umhverfinu. Fullt af nýjum veitingastöðum og búðum !!!! Svona er þetta með heilabylgjurnar.
Þegar við gefum reiki og vinnum í þögn dettum við gjarnan í alfa ástand. Þess vegna getur klst verið eins og 10 mín og 10 mín eins og klst. Innsæi og næmi eykst á meðan þú ert í þessu ástandi og sérstök vellíðan fylgir ástandinu. Í raun getum við kallað þetta hugleiðslu. Þegar þú vinnur með sjálfa(n) þig og gefur reiki getur þú um leið nýtt tímann til að hugleiða á þennan hátt.
Hægt er að þjálfa sig í því að koma sér í alfa ástand og nýta sér það í daglegu lífi. Ein aðferðin er að telja frá 100 og niður í 0 og þá ertu kominn í alfa ástand.
Önnur aðferð er að sjá fyrir sér eða hugsa sér gyllta ljós- kúlu fyrir ofan höfuð þitt. Þú biður persónuleika þinn um að fara inn í ljóskúluna og með útöndun læturðu ljóskúluna síga í gegnum hverja orkustöðina af annarri, niður í rótarstöð. Þegar þangað er komið læturðu kúluna fljóta upp í tilfinningastöð, á innöndun og ert þá komin(n) í alfa. Þetta þarf smáæfingu fyrst en síðan áttu að geta gert þetta á augnabliki. Ef þú svo hrekkur út úr ástandinu ferðu bara inn í það aftur.
Ef þú ert í verslun á annatíma í dæmigerðu stresskasti geturðu snúið þér aðeins undan, lokað augunum og sett þig í alfa ástand. Taktu svo eftir breytingunni sem verður á þér og öllum í kringum þig. Þegar heili þinn gefur frá sér alfabylgjur fara aðrir í kringum þig að nema bylgjurnar og fara gjarnan í sama ástand. Þetta er líka upplagt að nota inn á heimili þar sem órói er eða t.d. í kennslustofu og annarsstaðar þar sem slökunar er þörf.
Listin að vinna sem hlutlaus heilari.
Reiki virkar þannig að þiggjandi dregur orku í gegnum heilarann, þ.e. heilarinn er ekki að gefa orku, hann stjórnar ekki neinu. Þar sem eiginlegur stjórnandi í reikimeðferð er yfirsjálf þiggjanda þá skulum við hafa það í huga að yfirsjálfið veit best hvað þiggjandinn þarf af orku og hvernig henni skal varið. Allt annað er stjórnun af hálfu heilara og þá er alltaf hætta á að egó heilarans trufli.
Guðrún Óladóttir: “ Í starfi mínu sem heilari upplifði ég það einn góðan veðurdag að þörf min til að hjálpa öðrum var ekki lengur til staðar. Þegar ég byrjaði í reiki var ég rekin áfram af þessari þörf. En þarna var hún sem sagt ekki lengur til staðar. Ég var auðvitað miður mín og hélt að þar með væri starfi mínu sem heilara lokið, nú gæti ég leitað mér að annarri vinnu! En leiðbeinendur mínir létu mig fljótlega vita að þetta væri nauðsynlegt skref á þroskabrautinni fyrir alla heilara. Þetta myndi hjálpa mér til að starfa með heilun á hlutlausan hátt og án þess að egóið mitt kæmi þar við sögu. Nú hef ég lært að sætta mig við þessa þróun og tel mig geta verið nokkuð hlutlausa í starfi mínu. Nú hef ég engar væntingar um útkomu. Ábyrgðina á útkomunni skil ég nú eftir hjá þiggjandanum og Guði”.
Ábyrgð þín og ábyrgð þiggjanda.
Þegar einhver biður þig um að gefa sér reikimeðferð þarft þú að útskýra að hægt er að velja um tvenns konar meðferð. Annars vegar orkustöðvameðferð sem virkar jafnvægisstillandi og fyrirbyggjandi og verður að vinnast á þremur samliggjandi dögum. Hins vegar meðferð sem felst í því að vinna með veikt svæði. Þú þarft að útskýra muninn fyrir þiggjandanum en láttu hann um að velja og þegar valið hefur farið fram er ábyrgðin hjá honum. Og það er á hans ábyrgð hvort hann mætir eða ekki. Þegar heilunarmeðferð er hafin er ábyrgðin algjörlega hjá þiggjandanum. Þetta er vegna þess að heilarinn er aðeins að veita þiggjandanum aðgang að orku og það er þiggjandans að nýta þessa orku sér til handa og þá er hann að lækna sjálfan sig. Það er ekki heilarinn sem ber ábyrgð á verkinu heldur þiggjand-inn og um leið er það þiggjandanum sjálfum að þakka ef lækning á sér stað.
Oft vill þiggjandinn að heilarinn sjúkdómsgreini.
Guðrún Óladóttir: “ Oft geri ég mér grein fyrir “hvað er að” en ég nýti mér þetta fyrst og fremst til að leggja áherslur á ákveðin svæði en greini yfirleitt ekki frá því. Hins vegar spyr ég kannski hvort viðkomandi hafi farið til læknis og fengið sjúk-dómsgreiningu og ef svo er ekki bendi ég viðkomandi á að gera slíkt. Fyrir þiggjanda er nauðsynlegt að vita að hann ber ábyrgð á heilsufari sínu og að í því felst að leita til réttra aðila til að fá greiningu og/eða lækningu. Þegar greining er fengin á við-komandi hins vegar að nota frelsi sitt til að velja á milli með-ferðaraðila. Þá getur verið um meðferð hjá lækni að ræða en samhliða þeirri meðferð er hægt að nýta sér heilun til að flýta fyrir bata.
Það sama er að segja um lyfjatöku, þú átt aldrei að skipta þér af henni. Bentu viðkomandi á að leita til þess læknis sem gaf lyfin ef viðkomandi telur þörf á því”.
Sjálfið okkar.
Sálin, undirmeðvitundin, innri rödd, samviska okkar. Allt er þetta sjálfið okkar. Hugsum okkar að Guð sé stórt og mikið ljós. Frá þessu ljósi fara neistar sem lækka í tíðni um leið og þeir fjarlægjast stóra ljósið. Þessir neistar eru sjálfið okkar. Sjálfið okkar leitast við að hækka tíðni sína sem gerir það að verkum að við leitumst við að verða kærleiksríkari. Þeim mun meiri kærleikur þeim mun hærri tíðni og þeim mun fyrr komumst við heim. Sjálfið okkar er stöðugt í sambandi við okkur, það leiðbeinir okkur en við treystum ekki nógu vel þessari “innri rödd” og hunsum hana oft á tíðum. Hugsaðu þér að líf þitt sé sporbraut sem fer í hring og vagninn á spor-brautinni ert þú. Þú manst svolítið aftur í tímann, hvað hefur gerst undanfarin ár og þú getur kannski séð örlítið fram í tímann. En stærsti hluti sporbrautarinnar er þér hulin ráðgáta. Sjálfið þitt er staðsett í miðjum hringnum og hefur þ.a.l. yfirlit yfir allt lífskeið þitt, veit hvað þér er fyrir bestu og getur undirbúið þig fyrir það sem koma skal, ef þú leyfir. Það gerir þú með því að treysta á það og hlusta. Þegar þú ferð að treysta sjálfinu þínu til að sjá um að allt sé eins og það á og þarf að vera fyrir þig tekur líf þitt stakkaskiptum, þú getur upplifað alsnægtir í þínu daglega lífi og tilfinningar eins og áhyggjur heyra sögunni til. Og nú veit ég að spurning þín er: Já en hvernig? Og það merkilega við þetta allt er að spurningin er ekki hvernig heldur hvort þú ert tilbúin að treysta. Sjálfið þitt er hluti af Guði og þú ert guðleg vera. Rétt eins og dropi er hluti af hafinu en ekki hafið sjálft, þá ert þú hluti af Guði en ekki Guð. Ein besta leiðin til að komast í samband við sjálfið sitt er að vera í kyrrð og ró eða hugleiða. Í hugleiðslunni nær sjálfið til okkar en ef við erum alltaf á hraðferð og hugurinn úti um allt þá nær sjálfið ekki í gegn. Það er alltaf á tali!
Ein leið fyrir sjálfið til að undirbúa okkur fyrir það sem koma skal er í gegnum draumana. Þegar þú gerir þér grein fyrir því að draumar þínir eru mikilvægir ferðu að muna þá, svo einfalt er það.
Hvað stjórnar því hvort við
lifum í alsnægtum eða ekki?
Sjálfið okkar reynir að sjá til þess að við höfum það sem við þurfum í lífi okkar. Það gefur okkur leiðbeiningar þar að lútandi. Þær koma gjarnan fram sem tilfinning okkar fyrir hinu eða þessu. En þar sem við treystum ekki þessari innri rödd eða tilfinningu okkar fyrir hlutunum á sjálfið okkar mjög erfitt uppdráttar við þessa vinnu sína! Það að lifa í alsnægtum er mjög afstætt hugtak. Fyrir suma geta alsnægtir verið ein hrísgrjóna-skál á dag, eða súpuskál, motta til að sofa á, pappaþak yfir höfuðið, eða mjög gott samband við stóran hóp af fólki. Fyrir aðra eru alsnægtir ríkidæmi. Þetta fer allt eftir hvað sálin er að takast á við í þessu lífi, hvað þjónar æðsta tilgangi fyrir okkur að þessu sinni. Ef þú lítur á þig sem eitthvað minna en guðlega veru og upplifir að þú eigir ekki allt hið besta skilið þá munu hugsanir þínar koma í veg fyrir að þú trúir á alsnægtir. Alsnægtir eru ekki bara efnislegt fyrirbæri heldur einnig tilfinningalegt og andlegt. Inn í alsnægtir koma allar kringum-stæður okkar í lífinu. Ef þú hugsar sem svo að þú getir ekki fengið það starf sem þú vilt vegna þess að þú hafir ekki þá menntun sem til þarf, muntu ekki einu sinni hleypa þér nálægt því. Ef þú upplifir að þú öðlist ekki hamingjuna vegna þess að þú eigir ekki slíkt skilið eða hafir ekki rétta útlitið, svo eitthvað sé nefnt, þá kemur þú sjálf(ur) í veg fyrir slíka auðlegt. Þú getur byrjað á því að sætta þig við þig eins og þú ert. Það er sagt að við hönnum líkama okkar áður en við komum hingað, slík hönnun hefur væntanlega einhvern tilgang. Þ.a.l. er guðlegur tilgangur fólginn í því að þú ert eins og þú ert. Ætlar þú að setja út á sköpunarverk Guðs?
Huglægar varnir.
Við sköðum kringumstæður okkar með hugsunum okkar. Það byggir á því að beint samband er á milli anda og efnis. Efnið sveigist eftir vilja og hugsun manneskjunnar. Þess vegna getur þú nýtt þér varnir sem þú byggir upp huglægt og veitir vilja þínum.
Þú getur t.d. varið þig og orku þína með því að hugsa þér að þú sért inni í sápukúlu. Þá hugsarðu þér, með lokuð augun, að þú standir inn í sápukúlu og að hún nái vel yfir áruna þína. Síðan biður þú um að aðeins kærleikurinn fái að flæða í gegnum kúluna. Þessi vernd endist í 3 klst og ef þú þarft áfram á vernd að halda, skaltu endurtaka þetta. Þessi vörn gerir þér kleift að halda orku þinni betur fyrir þig.
En þar með er ekki sagt að þú gefir ekki orkuna þína frá þér á einhvern hátt því að sambönd okkar við aðra byggja oft á dramatískum tilþrifum sem við tökum auðveldlega þátt í og verða til þess að við missum orkuna okkar, eða gefum hana öllu heldur. Þannig getur þú misst orkuna þína til manneskju sem fær þig til að vorkenna sér eða til manneskju sem þú óttast. Varnirnar geta verið margvíslegar, og reyndar bara eins og þér dettur í hug. Til þess að verjast ágangi annarra, eins og þeirra sem vilja vorkunn frá þér geturðu hugsað þér rós fyrir framan þig og aftan. Þá lokarðu augunum, hugsar þér rós beint fyrir framan hjartastöðina. Þegar þú hefur séð fyrir þér litinn og fundið lykt rósarinnar skaltu færa hana örlítið til hægri. Síðan gerirðu eins með rósina að aftan og færir hana síðan örlítið til vinstri. Þetta fer allt fram huglægt og endist í 3 klst. Ef þú þarft á vörninni að halda lengur þá hugsarðu þér að rósirnar molni niður og býrð til nýjar.
Jarðtengin er okkur nauðsynleg og það er mjög slæmt ef hún er lítil. Við erum hér á jörðinni til að taka þátt í lífi og starfi en ef við erum stöðugt í andlegum hugleiðingum og hug-leiðslum getur þessa tengingu hreinlega vantað. Göngutúr úti í náttúrunni, kynlíf, dans og hvers kyns hopp eru jarðtengjandi. Huglæg jarðtenging getur verið nauðsynleg og er mjög styrkjandi fyrir fólk. Einstaklingar sem eiga erfitt með að taka ákvarðanir hafa oft slaka jarðtengingu. Skortur á einbeitingu getur einnig verið vegna slakrar jarðtengingar. Til að jarðtengja þig geturðu notað 2 mismunandi aðferðir á huglægan hátt. Önnur er þannig: þú hugsar þér rótarstöðina þína eða mænurótina og sérð fyrir þér silfurstreng sem gengur beint niður úr mænurót og þaðan niður í jörðina þar sem þú hugsar þér að strengurinn festist með ankeri. Hin leiðin er sú að hugsa sér að mænurótin haldi áfram niður í gegnum hvorn fótlegg og út um iljarnar eins og trjárót og þaðan í jörðina. Ræturnar þurfa að fara djúpt í jörðina þannig að þú verður eins og gamalt rótfast tré. Þú getur prófað báðar aðferðirnar og valið þá sem þér henta betur. Þetta mun gera þig staðfastari og öruggari og er hægt að nota hvenær og hvar sem er. Þessi aðferð hentar sérstaklega vel ef þú þarft að takast á við erfiða manneskju eða verkefni sem krefst einbeitingar. Huglæg jarðtenging endist líka í 3 klst og er hægt að endurtaka að vild.
Þér kann að finnast stirt að nota huglægar varnir til að byrja með en áður en þú veist verður þér orðið þetta tamt og tekur þig engan tíma…
Nokkur heilræði.
Ef þú færð einkenni flensu; höfuðverk, hálsbólgu og hita getur þú gefið þér meðferð á orkustöðvarnar í 30 – 40 mín og hugsað um það á meðan hvort þú þarft nokkuð á þessari flensu að halda! Ef þú kemst að þeirri niðurstöðu að þú getir sleppt henni, að þig vanti ekki hvíldina, þá er mjög líklegt að þú yfir-vinnir flensuna á þessum mínútum. Ef þú hefur tækifæri til að leggja þig og taka allt í allt 2 tíma þá er nokkuð öruggt að lítið verður úr flensunni. Ef batinn kemur ekki og flensan verður að raunveruleika og þú færð háan hita skaltu passa vel upp á hugarfarið. Hafðu jákvæða afstöðu gagnvart ástandinu því slíkt hjálpar þér að yfirvinna veikindin fyrr.
Ef þú þarft að takast á við eitthvað sem þér þykir erfitt, t.d. að fara í próf, aðgerð, viðtal við bankastjóra eða atvinnuviðtal skaltu gefa þér góða meðferð á allar orkustöðvarnar kvöldið áður.
Ef þú brennir þig eða skerð skaltu endilega leggja hendurnar yfir strax því að skurðir og brunasár lagast mjög hratt með reikiorkunni, enda ert þú þá að gefa frumum líkamans aukna orku til að vinna.
Ávallt skal viðhafa allar varúðarráðstafanir, og leita læknis ef þörf er á, en það er alltaf gott að nota heilun með.
Kvef er hreinsun, sumir halda því fram að það sé hollt fyrir okkur að fá kvef, öðru hvoru! Reikimeðferð veldur því að kvefið eykst um tíma en því lykur jafnframt fyrr.
Ef þú ert komin(n) á eða um fertugsaldur og sjónin er farin að gefa sig og þú sérð ekki lengur á símaskrána án gleraugna þá getur þú hægt á þróuninni með því að gefa Reiki oft á augun. Mundu að þegar þú vinnur með eitt ákveðið svæði, t.d. augu, heldur þú höndunum í allt að 20 mín á svæðinu.
Ef þú færð tennisolnboga þá þarftu að muna að þú verður að snerta líkamann með báðum höndum. Sama gildir um herðar, ef vinstri hönd er á hægri öxl er hægri hönd undir vinstri olnboga.
Á þeim tíma dags sem blóðsykur fellur hjá okkur, einhverntíma milli 2 og 3 eftir hádegi, verðum við þreytt og syfjuð og við sækjum í eitthvað sætt. Þá er upplagt að gefa Reiki í 10 mín á magastöðina.
Töluvert er um að fólk með of háan bóðþrýsting hafi náð að lækna sig en þá þarf að gefa sér meðferð daglega í 2 til 3 mán þar til árangur næst. Tilfinningalegi þátturinn á bak við of háan blóðþrýsting er langvarandi tilfinningalegt álag og þ.a.l. skortur á gleði. Með úrvinnslu á tilfinningum okkar og aukinni gleði getum við einnig lækkað of háan blóðþrýsting.