Sextug - líkamsrækt?
Sextug og æfir ekki reglulega.... Þú ert nú 5 til 7 cm lægri en þú varst og gætir verið komin með beinþynningu m.a. vegna þess að þú hefur ekki stundað nauðsynlega styrktarþjálfun til að viðhalda styrk beina. Brjóst þín eru orðin slapandi og mittið breikkar enn meira. Hjarta þitt er 10 til 15% veikara en það var þegar þú varst tvítug. Slæmt ástand ónæmiskerfisins veldur því að þú átt á hættu að fá krabbamein og fleiri sjúkdóma. Hrukkur eru nú djúpar og húðin þurr.
Sextug og æfir reglulega... Þú hefur sterka og teygjanlega vöðva og nægan þrótt. Þrátt fyrir þau áhrif sem breytingaskeiðið hefur á estrógengframleiðslu líkamans halda beinin styrk sínum. Það má þakka að hluta til styrktarþjálfun sem þú hefur stundað allt þitt líf. Þjálfunarpúls þinn er u.þ.b. 115 slög á mínútu (30 til 40 slögum á mín. lægri en á þrítugsaldri). Þar sem þolþjálfun hefur viðhaldið styrk hjartans er það fært um að dæla nægu magni blóðs til allra líkamshluta. Hlutfall líkamsfitu í líkama þínum er u.þ.b. 26%.
Sextug - líkamsrækt?
Sextug og æfir ekki reglulega.... Þú ert nú 5 til 7 cm lægri en þú varst og gætir verið komin með beinþynningu m.a. vegna þess að þú hefur ekki stundað nauðsynlega styrktarþjálfun til að viðhalda styrk beina.
Fimmtug - líkamsrækt?
Fimmtug og æfir ekki reglulega.... Þú er illa sett hvað varðar líkamsburð þar sem liðleikanum og styrknum hrakar stöðugt. Þú hallar fram á við, hefur framstæðan maga og of fatt neðra bak.
Fertug - líkamsrækt?
Fertug og æfir ekki reglulega... Þú ert núna 15% veikburðari en þú varst þrítug og þér á eftir að hraka enn meira í kringum 45 ára aldurinn. Axlirnar virðast þrengri sökum vöðvarýrnunar í hálsi og öxlum.