Fimmtug - líkamsrækt?
Fimmtug og æfir ekki reglulega.... Þú er illa sett hvað varðar líkamsburð þar sem liðleikanum og styrknum hrakar stöðugt. Þú hallar fram á við, hefur framstæðan maga og of fatt neðra bak. Afleiðingar of lítillar þolþjálfunar byrja að verða sýnilegar. Blóðþrýstingur hækkar, þú verður móttækilegri fyrir sykursýki og hjartakvillum. Fita fer að safnast fyrir um miðbik líkamans, húðin tekur að krumpast og þyngdaraflið togar þig niður á við.
Fimmtug og æfir reglulega.... Þú heldur öllum þáttum góðs líkamástands. Aldur þinn er aðeins hægt að merkja á fituhlutfallinu sem eykst örlítið og er væntanlega um 24% nú. Þyngdarlögmálið getur farið að taka sinn toll þegar hér er komið og þú gætir farið að finna fyrir þreytu í liðamótum sökum mikillar hreyfingar í gegnum árin. Gott er að vanda valið á þjálfun og stunda þær tegundir þjálfunar sem ekki setja óþarfa álag á líkamann.
Sextug - líkamsrækt?
Sextug og æfir ekki reglulega.... Þú ert nú 5 til 7 cm lægri en þú varst og gætir verið komin með beinþynningu m.a. vegna þess að þú hefur ekki stundað nauðsynlega styrktarþjálfun til að viðhalda styrk beina.
Fimmtug - líkamsrækt?
Fimmtug og æfir ekki reglulega.... Þú er illa sett hvað varðar líkamsburð þar sem liðleikanum og styrknum hrakar stöðugt. Þú hallar fram á við, hefur framstæðan maga og of fatt neðra bak.
Fertug - líkamsrækt?
Fertug og æfir ekki reglulega... Þú ert núna 15% veikburðari en þú varst þrítug og þér á eftir að hraka enn meira í kringum 45 ára aldurinn. Axlirnar virðast þrengri sökum vöðvarýrnunar í hálsi og öxlum.