SCIO FEEDBACK
SCIO feedback eða „Öreindalífssvörun“. Eftir Margréti Margrétardóttur
Scio feedback er tækni sem vinnur við að leiðrétta orkusvið líkamans. Einfaldast er að skýra þetta með því að líkja þessu við vírusvörn í tölvu. Scio tæknin skannar líkamann með tíðnibylgjum og leiðréttir streitutengd frávik.
Virkni.
Með Scio tækninni er hægt að mæla orkulegt ójafnvægi í líkamanum sem getur verið að hafa áhrif á heilsufar einstaklinga t.d. næringarlega þætti eins og steinefni, vítamín og amínósýrur, svo og eiturefni, snýkjudýr, hormónaójafnvægi, bakeríur og veirur. Einnig tilfinningaleg áföll og streitu í líffærum okkar og líkamans í heild. Þetta er síðan borið saman við eðlilegt ástand og leitast Scio síðan við að leiðrétta ójafnvægið með því að reikna út líffræðilega viðbragðshæfni og ómun hvers einstaklings. Svo er það undir hverjum og einum komið hvernig hann/hún vinnur úr meðhöndluninni. Öreindalífssvörun er í raun gömul aðferð í nútíma tæknilegum búningi, einfaldlega „HEILUN“. Nokkur dæmi um forrit sem fólk hefur notið góðs af:
* forrit sem hjálpar fólki til að ná dúpri slökun sem hefur einnig áhrif á svefn, höfuðverki
*rafeinda-nálastungu forrit sem auðveldar orkuflæði líkamans
*forrit til að endurþjálfa vöðva og minnka streitu sem situr í þeim
Heilunin sem á sér stað gerir líkamanum kleift að vinna með meiðsli og annað sem hefur verið til fyrirstöðu. Einnig er til forrit fyrir þyngdartap svo eitthvað sé nefnt.
Hvernig afstressar Scio tækið líkamann?
Öreinda lífssvörun er byggð á öreinda efnafræði. Þessi tækni sýnir fram á það orkulega ójafnvægi sem hefur áhrif á heilsufar einstaklinga. Meðan á meðhöndlun stendur, mælir SCIO margar samhliða mælingar eins og rafspennu, rafstraum, viðnámsþol, vökvun, oxun, róteindaþrýsting, frávik, rafeinda þrýsting, samviðnám, ómun og andóf svo eitthvað sé nefnt. Einnig finnur SCIO út hvaða árangur hefur átt sér stað síðan síðasta mæling var gerð. Ef einhver árangur hefur náðst, mun innslags ómurinn breytast orkulega og viðhalda þeirri stillingu eftir þörfum. Það eru allir sem geta nýtt sér þessa tækni og haft gagn af; börn og dýr eru einstaklega næm þar sem þau er mun opnari og óheftari fyrir meðhöndlun og er mjög ánægjulegt að sjá þann árangur sem orðið getur hjá þeim.
Með þessari tækni höfum við orðið vitni að frábærum árangri í sambandi við skapgerðarbreytingar, ofvirkni, þyngdartap, mígreni, vöðvabólgu og betrun á ýmsum sjúkdómum og meðslum. Fólk almennt áttar sig á því hversu alvarleg áhrif stress hefur á bæði andlega og líkamlega heilsu. Flestir eru ótrúlega fljótir að taka við sér og er ánægjulegt að fylgjast með fólki taka sér tak og breyta lífi sínu til hins betra með því að taka ábyrgð á lifnaðarháttum sínum og hafa þannig breytt algjörlega heilsu sinni og líðan.
Bandaríska lýðheilsustofnunin hefur gefið út þá yfirlýsingu að um 80% af öllum sjúkdómum séu afleiðingar streituálags. Vísindalega hefur verið sannað að lífssvörun slakar á stressi og yfirálagi sem getur tengst veikindum, meiðslum og /eða tilfinningalegum áföllum. Eins og við vitum lifum við á tímum hraða og þ.a.l. myndast stress auðveldlega allt í kring um okkur. Stress myndast af hinum ýmsu ástæðum og getur haft líkamlegar, andlegar og sálarlegar afleiðingar.
Orkuhjúpurinn (áran) í kring um okkur er stór vörn fyrir okkar andlega og líkamlega ástand. Þegar stress myndast byrjar það að leggjast á orkuhjúpinn og ef við ekki náum að vinna gegn þessu stressi kemst það nær kjarnanum, sem er líkaminn. Því nær líkamanum sem það kemur, því minni verður mótstaðan og oft endar það með þvi að heilsan brestur og sjúkdómar verða til.
Stress verður til í mörgum myndum og oft á tíðum erum við ekki meðvituð um hversu djúpstæð áhrif það hefur á okkur. Í stað þess að vinna með stressið reynum við oft að ýta því frá okkur eða bæla það niður með ýmsum hjálpartækjum, en það er ekki þar með sagt að vandamálið sé ekki lengur til staðar.
Hverjar geta verið afleiðngar stress og á hverju missir líkaminn stjórn?
Til dæmis skapsveiflur, meltinar- og brennslutruflanir, óreglulegur svefn, ofnæmi getur myndast, hárlos, máttleysi og ofát svo eitthvað sé nefnt. En hvað er það sem stendur upp úr? Jú, það er að líkaminn missir stjórn á að berjast gegn sjúkdómum, eða að hann hefur einfaldlega ekki næga orku til að verjast sýkingum. Niðurstaðan verður sú að líkaminn nær ekki að gera það sem honum er eðlislægt að gera, en það er að lækna sig sjálfur. Lílkaminn er byggður upp af frumun sem hafa sitt eigið minni sem er kallað „frumuminni“. Þó svo að við munum ekki eftir einhverjum líkamlegum skaða eða áfalli þá muna frumurnar eftir því. Við megum ekki gleyma því að líkaminn okkar er fullkomnasta „tæki“ sem til er og kemur í heiminn með alla burði til að heila sig sjálfur. Það er undir okkur komið að nýta og hvetja hann til að nota þessa eiginleika og sjá til þess að það sé hægt, einfaldlega með því að hlusta á hann og passa upp á hann. Í fáum orðum; með því að ná stjórn á stress-ástandi getum við viðhaldið og haft líkamlegt, andlegt og sálarlegt ástand í góðu formi, en það er nákvæmlega það sem SCIO lífssvörunin snýst um.
SCIO tæknin er notuð um allan heim í dag þar á meðal á hinum ýmsu heilbrigðisstofnunum og á tveimur stórum sjúkrahúsum í Bandaríkjunum. Sérfræðingar og læknar hafa það fram yfir aðra meðhöndlunaraðila sem vinna með SCIO tæknina að þeir hafa leyfi til að nota hana sem hjálpartæki við greiningar á sjúkdómum og ofnæmi svo eitthvað sé nefnt. Læknar og aðrir sérfræðingar innan heilbrigðisgeirans eru þeir einu sem hafa leyfi til að greina heilbrigðisástand fólks samkvæmt lögum. Aðrir sem vinna með SCIO tæknina hafa það ekki.
SCIO tæknin og meðhöndlun er eki hönnuð til að lækna eða greina sjúkdóma. SCIO tækið vinnur með og jafnar stress og ójafnvægi í orkuflæði líkamans. Þetta þarf að vera mjög skýrt bæði fyrir þá sem meðhöndla og þiggja meðferð. Meðhöndlun á stressi og orkuójafnvægi með SCIO tækninni á ekki að fela í sér að fólk finni sig knúðið að fjárfesta í vítmínum eða öðrum bætiefnum til að auka áhrif meðhöndlunarinnar því það er ekki raunin. Það er mjög mikilvægt að allir þeir sem hafa áhuga á þessari tækni átti sig á þessum atriðum og virði þær reglur sem framleiðendur SCIO setja um þessa tækni svo og að virða reglur í því samfélagi sem við lifurm í.
Hægt er að panta tíma í SCIO feedback tækið í síma 690-6004 eða senda email: siggasys@simnet.is Sigurbjörg Jóna Traustadóttir
Sextug - líkamsrækt?
Sextug og æfir ekki reglulega.... Þú ert nú 5 til 7 cm lægri en þú varst og gætir verið komin með beinþynningu m.a. vegna þess að þú hefur ekki stundað nauðsynlega styrktarþjálfun til að viðhalda styrk beina.
Fimmtug - líkamsrækt?
Fimmtug og æfir ekki reglulega.... Þú er illa sett hvað varðar líkamsburð þar sem liðleikanum og styrknum hrakar stöðugt. Þú hallar fram á við, hefur framstæðan maga og of fatt neðra bak.
Fertug - líkamsrækt?
Fertug og æfir ekki reglulega... Þú ert núna 15% veikburðari en þú varst þrítug og þér á eftir að hraka enn meira í kringum 45 ára aldurinn. Axlirnar virðast þrengri sökum vöðvarýrnunar í hálsi og öxlum.