Vatn eða gos. Grein af thjalfun.is
Vatnið er okkur lífsnauðsynlegt. Líkami okkar og líffæri þarfnast viss magns vatns daglega og ef við fáum ekki þetta vatnsmagn þá fara ýmsir kvillar að gera vart við sig. Við erum að fá þó nokkurn hluta af dagsneyslu okkar í gegnum matinn eða aðra vökva en hreint vatn og því miður eru mörg okkar að fá alltof stóran hluta af þessu magni í gegnum gosdrykki.
Íslendingar eru að fá tvöfaldan til þrefaldan dagsskammt af sykri daglega og er stór hluti þess í gegnum gosdrykki. Þetta er alltof mikið af sykri og því birtum við þessa grein því ég lofa þér því að þú hugsar þig tvisvar um áður en þú færð þér gos með matnum næst.
-75% Bandaríkjamanna eru með krónískan ofþurrk.
(Á sennilega við helminginn af heiminum, þar með talið Íslendinga.)
-Í 37% Bandaríkjamönnum er þorstatilfinningin orðin svo slök að hún er oft tekin sem hungur, og oftar en ekki verður djönkmatur fyrir valinu.
-Jafnvel vægur ofþurrkur getur hægt á brennslukerfi líkamans um 3%
-Eitt glas af vatni nægði til að loka alveg á hungur verki hjá næstum 100% af fólki sem tók þátt í könnum hjá Háskóla í Washington.
-Ónóg neysla af vatni, er ástæða númer EITT fyrir þreytu yfir daginn.
-Útkoma frá einni könnun gefur í skyn að 8-10 glös af vatni yfir daginn gæti létt á bakverk og liðaverkum fyrir allt að 80% þolenda.
-Ef vatnið í líkamanum lækkar um aðeins 2% getur það valdið lélegu skammtíma minni, vandræðum við einfalda stærðfræði og vanda við einbeitingu á tölvuskjá eða á prentaðri blaðsíðu.
-Að drekka 5 glös af vatni lækkar hættuna á krabbameini í þörmum um 45%, plús að geta lækkað hættuna á brjóstkrabba um 79% og maður er í 50% minni hættu á að fá blöðru krabbamein.
Drekkur þú jafn mikið vatn áhverjum degi eins og þú átt að gera ?
Jæja þá er komið að gosdrykkjunum. Íslendingar neyta gríðarlegs magns af gosdrykkjum dag hvern og virðist þetta vera stundum eins og fíkniefni og er gjarnan talað um “kókista” Raunin er sú að gosdrykkir eru óhollir sökum mikils sykurmagns og algjörs næringarefnaskorts. Þeir innihalda einnig oft önnur mjög vafasöm efni sem almenningur virðist ekki vera meðvitaður um. Hérna er smá pistill um gosdrykki og í hvað þeir eru nýtilegir í annað en til drykkjar…
- Í mörgum bandarískum fylkjum hefur vegalögreglan 10 lítra af gosi í bílunum hjá sér til að þrífa blóð af vegunum eftir umferðarslys.
-Þú getur sett T-Bone steik í skál af gosdrykk og hún verður horfin eftir 2 daga.
-Til að hreinsa klósettið: Helltu einni dós af gosdrykk ofan í klósetið, bíddu í eina klukkustund og sturtaðu svo niður. Sýran í kókinu leysir upp bletti.
-Til að fjarlægja ryð bletti af króm stuðurum: Dýfðu krumpuðum álpappír í gos og nuddaðu stuðarann.
-Til að hreinsa batteríið í bílnum: Helltu einni dós af gosi yfir batterí tengslin.
-Til að leysa ryðgaðan bolta (skrúfu). Rennbleyttu tusku með gosi og haltu henni á boltanum í nokkrar mínútur.
-Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði: Helltu einni dós af gosi í þvottavélina bættu við þvottaefni og þvoðu eins og venjulega. Gosið hjálpar til að leysa upp fitublettina.
-Gosdrykkir hreinsa líka framrúðuna á bílnum þínum vel.
-Virka efnið í gosdrykkjum er phosphoric acid.
-Ph í mörgum gosdrykkjum er 2.8. Það getur leyst upp nögl á ca fjórum dögum.
-Til að flytja sýrópið í dökku gosi (fullan styrk) þurfa vöruflutningabifreiðarnar að hafa á sér viðvörunarskilti sem venjulega eru frátekin fyrir flutninga á MJÖG ÆTANDI EFNUM.
Jæja er það skál í botn eða………..
Til baka
Sextug - líkamsrækt?
Sextug og æfir ekki reglulega.... Þú ert nú 5 til 7 cm lægri en þú varst og gætir verið komin með beinþynningu m.a. vegna þess að þú hefur ekki stundað nauðsynlega styrktarþjálfun til að viðhalda styrk beina.
Fimmtug - líkamsrækt?
Fimmtug og æfir ekki reglulega.... Þú er illa sett hvað varðar líkamsburð þar sem liðleikanum og styrknum hrakar stöðugt. Þú hallar fram á við, hefur framstæðan maga og of fatt neðra bak.
Fertug - líkamsrækt?
Fertug og æfir ekki reglulega... Þú ert núna 15% veikburðari en þú varst þrítug og þér á eftir að hraka enn meira í kringum 45 ára aldurinn. Axlirnar virðast þrengri sökum vöðvarýrnunar í hálsi og öxlum.