Innsýn í liti árunnar.
Hvítur:
Tákn hins ópersónulega og óeigingjarna kærleika. Æðra sjálf einstaklings sem þannig beinir áhrifum sínum niður á persónulega sviðið en einnig getur verið um að ræða orku frá andlegum verndurum. Hvítur getur líka komið í ljós fyrir áhrif fyrirbæna.
Stundum er orkan mjólkuhvít og býr þá yfir ákveðnum þéttleika. Þetta sýnir að einstaklingur er fær um að nota kærleika sinn og miðla honum í þágu annarra. Stundum sést líka hvernig kærleiksorka frá öðrum umlykur einstakling og birtist þá sem hvítleit og lýsandi geislaslæða sem lýsir upp allt blikið.

Silfur:
Felur í sé mikinn styrk og frumleika en einnig hressandi áhrif. Oft tengist silfraði liturinn áhrifum frá verum annarra hnatta, sem einnig geta komið fram sem silfurgljáandi bjarmi yfir öllu blikinu.

Gull:
Sjaldgæfur en þegar hann er í blikinu liggur orkan ofarlega því að hún tilheyrir orsakasviðunum. Gullna orkan er merki þess að persónan býr yfir mikilli andlegri visku sem venjulega eiga rætur að rekja til andlegra vísinda austurlanda. Hann vitnar einnig um liðin æviskeið persónunnar í löndum Asíu þar sem hún hefur áunnið sér núverandi þroska með miklum sjálfsaga og hugrækt.

Svartur:
Litur egósins eða hins persónulega vilja – t.d. ég vil - mér finnst o.s.fr. Mörgum finnst svarti liturinn hafa á sér neikvæðan blæ en hann er þó ekki síður nauðsynlegur en aðrir litir. Sagt er að við eigum að losa okkur undan áhrifamætti egósins, þ.e. eigingirninni, en eigi það að vera mögulegt verðum við fyrst að skilja eðli þess og áhrif. Of margir reyna að komast hjá þessari staðreynd og sýna einhvers konar yfirboðrslega elsku eða óeigingirni sem er þó ekki raunveruleg og hylur aðeins annað sem inni fyrir býr. Sé svarti liturinn í góðu jafnvægi við aðra liti bliksins þá eru áhrif hans til gagns en sé svart mjög áberandi sýnir það óhóflega eigingirni og sjálfselsku. Stundum koma fram í blikinu stórir svartir flekkir. Það bendir til bældrar sjálfvitundar en afleiðingin er niðubæld reiði og biturð sem síðan orsakar árásargirni og hömluleysi.

Grár:
Sé ljósgrátt í blikinu – einkum ef ber á silfurgliti – bendir það stundum til áhrifa frá geimverum og tengslum þeirra við persónuna. Þessi áhrif gera einstaklinginn oft frjálslegri og óhefðbundnari í hugsun og ekki eins háðan venjum og siðum. Dekkri grár ber vott um vissa ákveðni í hugsun, persónan er þá fær um að taka sjálfstæðar ákvarðanir, velja og hafna. Komi fram dökkgrá skýr rák bendir það til að þessi eiginleiki sé áberandi í fari persónunnar – einkum ef rákin nær langt niður eftir blikinu. Ef gráa orkan birtist í óreglulegu formi og er skellótt eða hnökrótt sýnir það óákveðni í hugsun og bendir oft til nokkurs þunglyndis. Komi orkan fram á fyrrnefndan hátt er nauðsynlegt að athuga hvort grái liturinn sé áberandi um stóran hluta líkamans því ef svo er þá ber það vott um mikið þunglyndi persónunnar. Komi grá orkan hins vegar í ljós til hliðan við sjálfan líkamann sýnir það að persónan hefur átt við þunglyndi að stríða semað mestu er horfið.


Fjólublár:
Ljósfjólublár litur í blikinu merkir annaðhvort að persónan sé gædd mjög næmu innra jafnvægi eða sé að þroska með sér þennan eiginleika. Komi ljósfjólubláa orkan fram sem grunnlitur í blikinu bendir það til að viðkomandi hafi í fyrri jarðvistum þroskað með sér skilning á lykilhlutverki jafnvægis í tilverunni – þó ekki í þeim skilningi að vera ávallt í einhvers konar jafnvægismiðju – heldur að það sem skipti mestu sé að kunna að sætta andstæðurnar hvar sem þær koma fyrir. Skilning á þessum þáttum tilverunnar má oft finna í speki Austurlanda þar á meðal kenningum Zaraþústra um eðli andstæðnanna.
Dökkfjólublár litur ber merki um mikinn viljastyrk, einnig stefnufestu og hæfileika til að breyta bæði sjálfum sér og umhverfinu á róttækan hátt. Þessi dökkfjólublái litur fer að birtast í blikinu þegar persónan fer eftir eðlisávísun sinni og ákveður að gera róttæka breytingu á sjálfum sér og tilveru sinni. Þetta er jarðbundin orka og þegar hún á annað borð gerir vart við sig hljóta áhrif hennar að koma í ljós. Þegar liturinn er ljósari eða millifjólublár ber það vott um að þrátt fyrir miklar breytingar muni jafnvægið haldast. Í rauðfjólubláu orkunni býr mikill andlegur og sálrænn styrkur og jafnframt hæfileikar til leiðsagnar og sálrænna lækninga.

Blár:
Dimmbláa orkan sýnir stjórnunarhæfileika, þrjósku og mikinn viljakraft sem beinist að umhverfi persónunnar sjálfrar.
Blágrátt sýnir orku Merkúrs sem felur í sér rökvísi, hæfileika til að skipuleggja, breyta og raða saman en einnig skilning á mannlegur eðli og leiðbeiningarhæfileika. Sé litblærinn hreinn og fagur felur hann í sér ríka samúða- og kærleikskennd ásamt skilningi á mannlegri þjáningu.
Mánablátt hefur á sér ofurlítið rósrauðan blæ. Í mánaorkunni r fólgin mikil kærleiksorka og hæfileiki til að hjálpa í krafti náinnar vináttu og tengsla. Hér er um að ræða ríka tilfinningu fyrir þörfum annarra og þann eiginleika að geta sett sig í spor annarra.
Ljósblátt ásamt þeim rósbleika ber vott um samúð og umhyggju. Ljósblár einn og sér í forgrunni bliksins sýnir hins vegar veikleika og þurfa sterkari litir að fylgja honum tilað hann hafi einhver teljandi áhrif. Annars býr ljósblái liturinn yfir samúðartilfinningu og kærleika til náungans en áhrif hans njóta sín best í bakgrunni bliksins. Þegar hann birtist sem breið rák aftantil í blikinu bendir það til kristinna uppeldisáhrifa í uppeldi en getur líka verið merki jþað að hún hafi í mörgum jarðvistum mótast af kristinni trú og orðið fyrir djúpum áhrifum af kristnum trúarviðhorfum. Í núverandi jarðvist grundvallast trú einstaklings á þessum sjónarmiðum án þess að gera sér grein fyrir því. Þegar við biðjum bænir koma áhrifin oft fram í blikinu sem ljósblá, bláhvít eða blágrá orka. Fyrirbænir annarra birtast einnig á sama hátt í blikinu.

Ljósblágrænn (túrkís):
Blágræni liturinn felur í sér kærleika og svölun tilfinninga, honum fylgir heildarsýn og tilfinningalegt samræmi. Þessi litur hefur góð áhrif á þá sem eiga við tilfinningalegt ójafnvægi að stríða og hafa of stóran geðlíkama.


Grænn:
Grænn birtist í mörgum litbrigðum sem öll hafa sín sérkenni. Þó má segja að friður og samræmi sé aðaleinkenni græna litarins.
Dökkgrænn sýnir vilja einstaklings til að skapa frið og samræmi í umhverfi sínu og hæfileika til að beina öðrum inn á sömu brautir. Gagnlegur litur þeim sem stunda kennslu og uppeldisstörf.
Ólívugrænt tengist sjálfsvirðingu. Oft má sjá olívugrænt í tengslum við grátt en það sýnir ákveðni og heilbrigða sjálfsvirðingu. Þessi tvö litbrigði fylgjast oft að í blikinu í tengslum við hjónaskilnaði eða vinslit af ýmslu tagi. Hafi persóna ekki fundið ólívugrænu orkunni jákvæðan farveg er algengt að hún streymi fram í óreglulegu formi um blikið eða hylur þá ýmislegt sem persónan neitar að horfast í augu við.
Smaragðgrænn er afar sterkur litur sem tengist sköpunnargáfu í myndrænu formi. Hann sýnir einnig hæfileika til að lækna líkamlega sjúkdóma.
Grasgrænt tengist heimilishaldi og starfsemi á því sviði, svo sem matreiðslu, hreingerningum og öðru er varða heimilið.
Venusargrænt (sbr. Ljósgræn beykiblöð) ber vott um kærleiksorku, heilunarorku og þroskun kvenlegra eiginleika – allt tilheyrandi hjartaorkunni.
Pastelgrænt tilheyrir orku Neptúnusar og tengist friðsæld, sköpunargáfu og fleiki jákvæðum orkuþáttum.
Ljósgrænan er einnig að finna á hinum huglægu sviðum Úranusar og Merkúrs og ber vott um hugrænan fínleika, vingjarnleika og skilning.

Gulur:
Gult er tákn vilja og visku. Erfitt er oft að greina gulu orkuþættina hvern frá öðrum og nauðsynlegt er að beita innsæinu þegar þeir eru annars vegar.
Sólarorku-gulur (sbr lit smjörblóms) sýnir ákveðni og stefnufestu. Sé liturinn í jafnvægi innan bliksins er það merki þess að persónunni sé lagið að ná markmiðum sínum og hafi sterka sjálfskennd.
Gulgrænn karrýlitur tengist oft afbrýði og öfund. Þetta er litur sólarorkustöðvarinnar sem hér birtist í óhreinni mynd.
Dökkgult eins og það kemur fram hjá plánetunum Úranusi og Júpíter vitna um persónulegt sjálfstæði og sterkan vilja. Þessi litur er mjög áberandi hjá fólki sem hefur mikla þörf fyrir frelsi og sjálfstæði. Þetta eru þeir sem oft er erfitt að leiðbeina eða gefa góð ráð og vilja sjaldan viðurkenna að þeir þurfi á hjálp að halda.
Milligult sýnir lærdóm eða þekkingu sem einstaklingurinn hefur áunnið sér. Sé þessi gula orka staðsett í námunda við höfuð persónu án sýnilegra jarðbindingar er um að ræða geymda þekkingu sem persónan notfærir sér ekki. Þetta ástand má oft sjá hjá skólafólki og virðist þá eins og huglíkaminn sé ofhlaðinn.
Gyllt táknar djúpa visku sem oft á sér rætur í fyrri æviskeiðum. Hafi einstaklingur td verið lama – eða búddhamunkur í fyrri jarðvist, birtist sú reynsla hans í þessum gullna orkulit sem er vott um djúpan skilning og innsæi í tilveru mannsins og ástand. Stundum birtist þessi vitundarorka í bakgrunni bliksins sem þá sýnir tilkomu hennar við fæðingu inn í núvernadi jarðvist. Stundum sést líka hvernig þessi vitundarorka hefur losnað frá orsakasviðinu eftir að hafa verið óvirk fyrstu æviárin en hefur síðan skapað sér farveg inn í blikið á seinni æviárum persónunnar þegar hún hefur byrjað að leggja stund á eigin andlegan þroska.


Appelsínugulur:
Appelsínugul orka ber vott um lífsgleði, lífskraft, kynorku og innri sveigjanleika ásamt hæfileika til að koma auga á hinar spaugilegri hliðar lífsins. Þetta er orkulitur lendastöðvar. Í skæru litaafbrigðunum kemur fram sterkari jarðbinding orkunnar.
Ferskjulitur sýnir að orkan er ekki eins jarðbundin heldur birtir hina ópersónulegri þætti þessarar orku. Hér birtist lífhamingja og innra samræmi ásamt djúpri samkennd með öllum lifandi verum.

Rósbleikur:
Rósbleikt er litur ástar og lærleika. Þegar rósbleikt birtist í fögru formi í blikinu bendir það til hamingju og kærleiksríkra ástarsambanda viðkomandi persónu. Sé þessi rósbleika orka sérlega ljósleit og skær sýnir það eiginleika persónunnar að laða að sér þá sem henni geðjast að.

Grábleikt.
Ef grábleik orka blandast þeim rósrauða bendir það til vandamála í ástarsamböndum og þeim mun meiri erfiðleikar eftir því sem meira er af gráu orkunni. Grábleik, móðukennd orkuský neðst í blikinu gefa til kynna að tilfinningar einstaklings skortir festu og innihald – hann býr yfir kærleiksríkum tilfinningum en hefur engan til að taka á móti þeim.

Skærrauður:
Sýnir vilja og framkvæmdaorku. Þetta er afar jarðbundin orka sem tengist íþróttum og öðrum verklegum athöfnum. Þegar skærrauð orkulína nær niður eftir endilöngu blikinu bendir það til að persónan eigi auðvelt með að framkvæm og beita líkama sínum. Ójöfnur í orkunni benda til vandamála.
Dökkrautt eða vínrautt. Ber vott um óeigingirni og fórnarlund sem kemur fram í þeirri hugsjón sem knúði móður Theresu til að veita bágstöddum hjálparhönd án endurgjalds.

Brúnn:
Brúni liturinn er tákn jarðbundnu orkunnar og sýnir áhuga á því sem jarðneskt er. Hann er tákn hins hagnýta og jarðbundna. Hér birtiast hin jarðnesku viðhorf okkar og áhugi fyrir því hversdagslega en einnig lífsánægjan – að kunna að njóta lífsins gæða.
Dökkbrúnn birtir þá hlið tilverunnar sem að peningum snýr. Fallega jöfn dökkbrún orkulína sýnir heilbrigða afstöðu til peninga og sýnir jafnframt að viðkomandi býr við góðan efnahag. Óskýrleiki eða ójöfnur sem koma fram í brúna litnum bendir til að persónan eigi í fjárhagslegum erfiðleikum.
Rauðbrúni liturinn sýnir efnishyggju. Hér sést að persónan leggur mikla áherslu á efnisleg gæði og gleðst yfir að fá að njóta þeirra. Efnishyggjan getur þó auðveldlega náð yfirhöndinni þannig að einstaklingnum hættir til leti og aðgerðarleysis, reynir að ýta frá sér vandamálum en leitar á náðir þæginda og vellystinga.
Ljósbrúni liturinn sýnir ánægju yfir að eiga ýmsa jarðneska hluti – td hús, bíl o.s.frv. Hér er aðalánægjan fólgin í því að eiga.
Ljósgrábrúnn (beige) Hjá sumum einstaklingum gætir áhrifa frá trúarbrögðum indíána þar sem jörðin sjálf er tilbeðin sem æðri máttur. Þessi áhrif koma fram í blikinu sem ljósgrábrún orka og henni fylgir djúpur kærleikur til móður náttúru ( þessi áhrif birtast líka oft í græna orkulitnum).


Einkennislitir orkustöðvanna:

Mænurótarstöð rautt Ennisstöð dimmblá
Hvatastöð appelsínugult Hvirfilstöð fjólublá, hvít,
Sólarorkustöð gult
Hjartastöð grænt
Hálsstöð blár

Sextug - líkamsrækt?
Sextug og æfir ekki reglulega.... Þú ert nú 5 til 7 cm lægri en þú varst og gætir verið komin með beinþynningu m.a. vegna þess að þú hefur ekki stundað nauðsynlega styrktarþjálfun til að viðhalda styrk beina.
Fimmtug - líkamsrækt?
Fimmtug og æfir ekki reglulega.... Þú er illa sett hvað varðar líkamsburð þar sem liðleikanum og styrknum hrakar stöðugt. Þú hallar fram á við, hefur framstæðan maga og of fatt neðra bak.
Fertug - líkamsrækt?
Fertug og æfir ekki reglulega... Þú ert núna 15% veikburðari en þú varst þrítug og þér á eftir að hraka enn meira í kringum 45 ára aldurinn. Axlirnar virðast þrengri sökum vöðvarýrnunar í hálsi og öxlum.
Hugveislan Logasalir 8, Kópavogi. S: 690 6004 veffang: syggasys@simnet.is