Hulið skin. olía striga. Margrét Elíasdóttir
Að Vekja
Ljóslíkamann
frá DaBen og Orin
Hvað er ljóslíkaminn?
Ljóslíkaminn er einn af orkulíkömum okkar á innri sviðum sem nú er hægt að nema vegna breyttrar og hærri orkutíðni hér. Þessi orkulíkami opnar okkur leið inn á fíngerðari orkusvið - sálarsviðið og hærra. Það eru vissar orkustöðvar (ekki líkamlegu orkustöðvarnar sjö) sem vekja upp ljóslíkamann, þær eru raunverulegar og hægt er að nema þær og gera virkar. Síðan er unnið með orkuna frá þessum stöðvum til að finna sitt innra sjálf og þroskast á raunhæfan hátt.
Að Vekja Ljóslíkamann námskeiðið.
Þegar þú vekur ljóslíkamann lærir þú að efla vitundina og uppgötva þína eigin sérstæðu orkutíðni, vinna með hana og færa inn í daglegt líf þitt.
Þetta námskeið er ferli í þrem áföngum og er gert til þess að auðvelda fólki að nýta sér nýju orkuna og aðlagast breyttum tímum.
Að vekja ljóslíkamann er hlutlaus aðferð þar sem tíu orkustöðvar ljóslíkamans eru gerðar virkar í hugleiðslum og sem þátttakendur fá á CD diskum eftir námskeiðið ásamt skriflegu efni.
Námskeiðið er haldið í þrem áföngum með u.þ.b. fjögura vikna millibili. Hver áfangi er föstudagskvöld kl. 19.00 til 22.00 ásamt laugardegi og sunnudegi kl. 10.00 til 17.00
Fyrsti áfangi – Að byggja stöðugan grundvöll og virkja hjartaorkuna. 1. áfangi, 26 - 28 sept.
Þrjár neðri orkustöðvar eru gerðar virkar, þær eru aflgjafinn fyrir ljóslíkamann og orkan frá þeim eflir vitundina. Hjartastöðin er einnig virkjuð á þessum áfanga, orka hennar er notuð til að vinna með tilfinningar, sambönd og til að ráða betur við hvernig aðrir hafa áhrif á þig. Þú lærir heilunaraðferðir til að breyta gömlum vanamynstrum ”innra barnsins” ásamt gömlum viðbrögðum persónuleikans.
Þú lærir að skoða sjálfan þig á nýjan hlutlausan hátt, byggja upp tilfinningalegt jafnvægi og finna kærleikstengingu við sjálfan þig og veröld þína.
Annar áfangi – Að virkja efri orkustöðvar og samræming. 2. áfangi, 17 – 19 okt.
Þrjár efri orkustöðvar eru gerðar virkar, þær hafa áhrif á hugsanaferlið og hjálpa þér að skapa skýrleika og þá hugarkyrrð sem þarf til að finna tengingu við æðri hugann og alheimsvitundina.
Þú lærir hvernig viðhorf þín skapa raunveruleika þinn og hvernig þú getur fært hugsanaferlið í jákvæðara horf.
Með þessum orkustöðvum styrkir þú innsæið, eykur sveiganleika hugans og lærir að miðla í hærri tíðni. Leiddar eru hugleiðslur til að ferðast sem vitund í tíma og rúmi, bæði til framtíða sjálfs og fyrri lífa, endurforritun erfðakeðjunnar og til að vinna með málefni á orkusviðinu t.d sambönd og fjárhag.
Þriðji áfangi – Ljóslíkaminn og útgeislunin. 3. áfangi, 21 - 23 nóv.
Í þessum áfanga er ljóslíkaminn vakinn með virkjun þriggja síðustu orkustöðvanna.
Þetta er opnun inn á sálarsviðið þar sem þú nálgast sálarorku þína og kynnist hvernig þú getur byrjað að blandast henni og byggja upp líf þitt með hærri orkutíðni. Þú færð aðferðir til að vinna með öðrum við fjarheilun og lærir hvernig þú getur ”haldið ljósinu”og endurvarpað því í alla þína tilveru.
Þessar orkustöðvar tengja þig við æðra sjálfið, Lógos jarðar (sál jarðarinnar) og vitundarsvið sem eru langt handan við rökhugann.
Kynningarkvöld verður haldið miðvikudaginn 24. september í versl. Gjafir Jarðar, Ingólfsstræti 2, kl. 20:00
Höfundar þessa efnis eru DaBen og Orin,
frá þeim hafa komið fjölmargar bækur og námskeið sem stuðla að andlegum þroska
Miðlað af Duane Packer og Sanaya Roman.
www.orindaben.com
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Margrét Elíasdóttir, hún hefur ástundað ljóslíkamann síðan 1990 og þýddi námskeiðið fyrst á íslensku og kenndi það hér frá 1992.
Margrét hefur einnig þýtt framhaldsnámskeiðin Sjálfvirkni (Self Exciting) og
Útvíkkun Ljóslíkamans (Light Body Expanded) ásamt öðrum námskeiðum.
Margrét er búsett í Stokkhólmi, sími + 46 8 7830109
solarisis@telia.com
Dagssetningar fyrir næsta námskeið
1. áfangi, 26 - 28 sept.
2. áfangi, 17 – 19 okt.
3. áfangi, 21 - 23 nóv.
Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðið
Berglind Magnúsdóttir
Sími: 864-5370
berglindgm@simnet.is
og
Herdís Björnsdóttir
Sími: 822-4111
herdis@gjafirjarðar.is