Hvað er HBS meðferð?
Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð.
Höfðubeina- og spjaldhryggjarmeðferð er óvenjulega mild, en jafnframt öflug meðferð sem getur fjarlægt sjúkdómseinkenni og þær truflarnir sem valda þeim, en getur einnig haft djúpa og áhrifamikla heilandi verkun á fjölmörg líkamleg vandamál, hvort sem um er að ræða einfaldan sársauka eða langvinn og flókin vandamál. Ennfremur getur meðferðin komið að gagni við nær hvaða aðstæður sem er, vegna þess að hún gengur alfarið út á það að efla heilbrigði, styrkleika og lífþrótt út frá innsta kjarna mannsins. Hún örvar eðlilegan lækningamátt líkamans, grefur undan rótum vandans, lýsir upp flóknar og erfiðar aðstæður og samhæfir alla styrkleikaþætti líkamans til sjálfslækningar.
Hvernig virkar meðferðin?
Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð felst í því að beitt er mjög léttri handsnertingu, bæði við greiningu og meðferð. Þessari léttu snertingu er beitt á höfuð skjólstæðings, spjaldhrygg hans og ýmsa aðra staði líkamans sem viðeigandi er hverju sinni. Meðferðaraðili getur “hlustað” á líkama skjólstæðings með höndunum með því að beita næmni sinni. Hægt er að greina tog, vinding og spennu í vefjum, sem geta brenglað og/eða hindrað eðlilegar, taktfastar hreyfingar höfuðbeina- og spjaldhryggskerfisins, sem nefnt hefur verið “þriðja taktkerfi” líkamans”.
Í gegnum þessa léttu snertingu er unnt að vinna með og losa um spennu og vinding. Þannig er einnig hægt að greina upptök vandans og örva hina hárfínu lækningaviðbrögð, sem tengjast höfuðbeina- og spjaldhryggjarkerfi líkamans. En til þess að líkaminn geti starfað á heilbrigðan og eðlilegan hátt er nauðsynlegt að allir vefir hans og vökvar geti hreyfst frjáls og óhindrað. Sé þessi frjálsa hreyfing hindruð á einhvern hátt, hefur það í för með sér þrengsli, stíflur og stöðnun sem leiðir af sér skerta líkamsstarfsemi og jafnvel sjúkdóma.
Það markmið sem meðferðaraðilinn hefur í huga þegar hann beitir höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð er að “hlusta” á takt þriðja kerfisins og greina hindranir í líkamanum og losa um þær. Þannig endurvekur hann flæði lífsorkunnar um allan líkamann og eflir starfsemi í sérhverjum líkamshluta. Í raun er bara verið að vekja líkamann og fá hann til að lækna sig sjálfur.
Ef líkami okkar fengi jafnmikla umönnum og athygli og bílarnir okkar væri heilsufar okkar mun betra.
Hverjum gagnast meðferðin?
Hjá ungbörnum: ungbarnakveisa, eyrnabólgur, svefnleysi.
Hjá börnum: byltur og föll, sýkingar, astmi, námserfiðleikar, hegðunarvandamál.
Hjá fullorðnum: höfuðverk, bakverk, tognun, meltingarvandamál, tilfinningalega spennu, eftirköst eftir slys.
Hjá öldruðum: stuðlar að betra andlegur og líkamlegu jafnvægi með minni þörf fyrir lyf og losna þar af leiðandi við aukaverkanir af völdum þeirra.
Hjá öllum: sem vilja bæta heilbrigði sitt og öðlast meiri tilfinningu fyrir vellíðan.
Barnshafandi konur:
Mjög áhrifarík og árangursrík meðferð fyrir og eftir meðgöngu.
Nokkur dæmi um vandamál sem HBS virkar vel á
Nokkur dæmi um vandamál þar sem meðferðin hefur orðið til bóta.
Astmi-Augnleti-Bak og hálsverkir-Blöðrubólga-Bræðiköst-Einhverfa
Eyrnabólga-Flogaveiki-Frosin öxl-Hegðunarvandamál-Heilahimnubólga.
Höfuðverkur-Hryggskekkja-Kvíði-
Hvað getur meðferðin lagað ?
Styrkur meðferðar er að hún vinnur með líkamanum og eykur eigin getur hans til að efla starfsemi miðtaugakerfisins og hefur reynst áhrifaríka á: mígreni,háls og bakverki, heila og mænuskaða, skerta hreyfigetur, streituvandamál, kjálka og bitvandamál,